Framtíðarborgin okkar - Reykjavík

Borgarskipulag er alltaf spennandi og skemmtilegt viðfangsefni, en að skipuleggja höfuðborgir og helstu lykilsvæði þeirra er ekki aðeins spennandi og skemmtilegt heldur einnig afar ögrandi og krefjandi fyrir öll metnaðarfull samfélög. Reykjavík er sannarlega þannig samfélag og þannig borg. Hér ríkir metnaður til að tryggja að skipulag hins byggða umhverfis bjóði íbúum fyrsta flokks lífsgæði, auk þess sem hér er til staðar mikill og almennur áhugi á þróun byggðar og borgar.

Reykvíkingar eru án efa flestir sammála um að Vatnsmýrin sé eitt af lykilsvæðum okkar góðu borgar. Hvort sem fólk telur að þar eigi til framtíðar að vera flugvöllur eða ekki, geta allir sammælst um að þetta mikilvæga svæði í miðri höfuðborginni eigi að njóta sérstakrar athygli og það beri að skipuleggja í heild sinni til að það nýtist til enn frekari eflingar borgarsamfélagsins. Sú alþjóðlega hugmyndasamkeppni um Vatnsmýrina, sem þessi bók er tileinkuð, tekur mið af þessari staðreynd. Hún tekur einnig mið af því að skipulag fyrir Vatnsmýrina felur í sér einstakt tækifæri til þróunar Reykjavíkur, tækifæri sem aðrar höfuðborgin eiga ekki og fellur með einstökum hætti saman við önnur ögrandi verkefni við upphaf nýrrar aldar.

Okkur stjórnmálamönnum er að nokkru leyti falin ábyrgð á mótun þess borgarumhverfis sem verður umgjörð mannlífs í Reykjavík á 21. öldinni. Það verkefni getum við hins vegar ekki leyst vel af hendi nema njóta krafta sem flestra íbúa og framúrskarandi fagfólks. Þess höfum við svo sannarlega notið í þessari keppni. Dómnefndin var einstaklega vel skipuð frábærum fagmönnum sem ég þakka sérstaklega samstarfið og ómetanlegt framlag þeirrar til framtíðarþróunar Reykjavíkur. Þeim fjölmörgu og fjölhæfu einstaklingum sem sendu hygmyndir sínar í keppnina er þakkað sitt framlag og vinningshöfum óskað til hamingju, á sama tíma og Reykvíkingum er óskað til hamingju með öflugar, áhugaverðar og spennandi tillögur fyrir framtíðarborgina okkar – Reykjavík.

Hanna Birna Kristjánsdóttir
Borgarfulltrúi

 
Skipulagsráð Reykjavíkurborgar